Haust 2011
Hæ.
Nú er orðið langt síðan mamma skrifaði hér inn. Í sumar var ég í Miðjunni tvo tíma á dag, þrjá daga í viku, en Miðjan er vistun fyrir börn með sérþarfir hér á Húsavík. Í sumar vorum við aðeins í Skóginum mínum, en það var ekkert gott veður hjá okkur í sumar. Í haust byrjaði ég í þriðja bekk og fékk nýja stuðninga. Ég er komin með þrjá stuðninga í stað tveggja áður vegna þess að ég sýni stundum þráhyggju gagnvart fólki. Það tók mig nokkrar vikur að venjast öllu þessu nýja en nú er ég mjög ánægð. Ég er komin með viðbót við stuðningsfjölskylduna mína, en það er Anna María sem var stuðningur minn í skólanum. Ég er í einkatímum í söng í skólanum hjá Hóffí og finnst það rosalega gaman enda er ég fljót að læra texta hvort sem þeir eru á íslensku eða ensku. Í nóvember kom loksins að því að ég fór á Greiningarstöðina. Ég hitti Dóru og Karitas frænkur mína og lék við þær. Eins hitti ég vini mína Björn Guðbert og Ásgeir Bjart en var orðin þreytt og vildi ekki leika. Hulda, stuðningurinn minn og Anna María, stuðningsfjölskyldan mín fóru með okkur á Greingarstöðina. Ég fór líka á "Sjónstöðina" og hefur sjónin mín lítið breyst, það sem ég sé á 6 metrum sjá aðrir á 12 metrum, sjónskerðingarnar eru eins. Ég fékk ný dökk filtergleraugu og valdi mér blá, ég þurfti ekki ný ljós gleraugu því mín eru ennþá fín. Ég fór á Heyrnar- og talmeinastöðina og þar gekk ekki nógu vel að fá mælingu, eins og venjulega, þeim fannst þó vinstra eyrað vera verra en það hægra og þarf ég að fara aftur til þeirra þegar þau koma næst á Akureyri. Við fórum líka í heimsókn á Tölvumiðstöð fatlaðra og fórum aðeins yfir málin. Svo fórum við í heimsókn í Klettaskóla (Öskjuhliðarskóla) og ég hitti fullt af krökkum, skoðaði flottu Smart töflurnar þeirra en svoleiðis væru sko flottar tövlur fyrir mig. Þau eru líka með svo flott skynjunarherbergi. Ég fékk að fara í heimsókn í nokkra bekki, þar á meðal til jafnaldra minna og það eru bara strákar. Þetta var rosalega gaman. Niðurstöðurnar frá Greiningarstöðinni setur mamma inná síðuna Ásrún Vala þegar þær koma formlega, en mamma og pabbi fengu svona það helsta þegar áður en við fórum heim. Ég fer reglulega í heimsókn í sveitina mína og finnst það rosalega gaman. Á föstudaginn var Verkstæðisdagur en þá er enginn skóli heldur ýmislegt föndur í öllum stofunum og ég labbaði á milli með mömmu en vildi ekkert föndra. Hins vegar vildi ég fara í Salinn en þar var selt kakó, vöfflur með rjóma og ýmislegt gott að borða, en mér finnst stundum svolítið gott að borða. Ég spyr á hverjum degi "Eru jólin í dag?" og "Má ég opna pakka í dag?" en það er víst ennþá nokkrir dagar í jólin. Mamma er búin að vera löt með myndavélina svo það eru ekki komnar inn nýjar myndir síðan í sumar, en vonandi bætir hún úr því. Endilega kvittið fyrir komuna og skiljið eftir komment.
Ásrún Vala kraftmikla.







