Velkomin á heimasíðuna mína/Welcome to my homepage

Ég heiti Ásrún Vala og er 8 ára snillingur/My name is Ásrún Vala and i´m 8 years old

 ...og Putta vini mínum...



Ég fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 14. apríl 2003 kl. 13.25 á afmælisdaginn hennar ömmu á bakkanum. Ég var 4.075 gr og 53 sm. Ég var með mikinn ljósan lubba og blá augu. Ég var skírð á afmælisdaginn hennar mömmu, 4. maí 2003. Mamma mín heitir Hermína Hreiðarsdóttir og pabbi minn heitir Kristján Ben Eggertsson. Ég á þrjú systkini Heiðrún Dóra 30.05.1989, Sigrún Edda 30.10.1992 og Hólmar Ben 27.12.1998. Við búum á Húsavík. Ef þið viljið hafa samband þá er emailið hennar mömmu herminah@simnet.is

I was born 14th of April 2003 at 13.25 on my grandmothers birthday. I weight 4.075 gr. and 53 cm. I had a lot of blonde hair and a blue eyes. I got my name on my mothers birthday, 4th May 2003. My mothers name are Hermína Hreiðarsdóttir and my fathers name are Kristján Ben Eggertsson. I have two older sister, Heiðrún Dóra 30.05.1989 and Sigrún Edda 30.10.1992, and an older brother Hólmar Ben 27.12.1998. We live in Húsavík, Iceland. If there is anything you like to know, my mother has a email herminah@simnet.is



...og fékk verðlaunapening...



HRÚTURINN

21. mars - 19. apríl


Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér ? það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.